Gusta
Ágústa Ósk
Egilsstaðir
Íþróttafræðingur
25 ára



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed

Tuesday, May 27, 2008
Sumarið er komið

Já það er sko óhætt að segja að sumarið sé komið Big Smile Bæði er fótboltinn kominn á fullt og svo er veðrið búið að vera rosalegt hérna síðustu daga!

Við Hattarstelpur komumst í úrslit C-deildar lengjubikarsins en töpuðum því miður fyrir Haukum 4-0 Angry Erum svo búnar að spila tvo leiki í deildinni, og að sjálfsögðu búnar að vinna þá báða, og komnar áfram í Visa bikarnum þar sem við keppum við Sindra á föstudaginn. Brjálað að gera!

Annars komu mínir yndislegu bræður í heimsókn til okkar síðustu helgi og fengu að upplifa alvöru sumar hérna á Héraði Big Smile Við höfðum það voða gott í sólinni, kíktum upp í sveit og lékum okkur svo í Hallormsstað. Haldin var óformleg keppni í "flottasta stöntið" og voru tvíbbarnir úr Leiðhömrum ótvíræðir sigurvegarar með þetta frábæra stönt Big Smile

Einar var öruggur í öðru sæti

og ég í því þriðja....held að ég sleppi því að láta mína mynd fylgja með! Tongue hehe..

Gaman að þessu!


Posted at 06:38 pm by Gusta
Comment (1)  

Wednesday, May 21, 2008
Champions of Europe

Já það lítur út fyrir að þetta blogg sé orðið grobbblogg eins og sumir myndu segja! Wink

Rétt áðan voru Manchester United að tryggja sér sigur í Meistaradeild Evrópu! Big Smile 

Og þvílík gleði!!! Vorum hérna nokkrar úr fótboltanum + Einar, Zoffi og Halli að horfa á leikinn og ég hef bara sjaldan upplifað annað eins stress Shocked Það var sko hoppað og dansað þegar van der Saar varði frá Anelka...það vantaði bara Ara og þá hefði þetta bara verið árið 1999 all over again! Shades Sjáumst á næsta ári Tjelskí!

 


Posted at 11:31 pm by Gusta
Comment  

Sunday, May 11, 2008
Englandsmeistarar 2008

 

Þvílík hamingja og gleði! Big Smile 

Fagna í kvöld með góðu djammi í Valaskjálf!


Posted at 06:46 pm by Gusta
Comment  

Wednesday, April 30, 2008
MOSCOW - 21.mai 2008

Glory glory MAN.UNITED!!!


Posted at 01:24 am by Gusta
Comment  

Wednesday, April 09, 2008
Hin hliðin

Sá þetta á síðunni hans Bjartmars þar sem hann tók Steven Gerrard ofurpúllara fyrir. Þar fannst mér nú ekki vera mikill munur á hliðunum og báðar hliðar bara ágætar. Það sama get ég því miður ekki sagt um argentíska snillinginn Carlos Tevez Hurmph Segi bara, sem betur fer tókst honum að meika það á vellinum!

Já hvor hliðin finnst ykkur vera fallegri.....sú vinstri

....sú hægri

.....eða kannski bara framhliðin

En maðurinn er snillingur þannig að who cares!?!

 


Posted at 10:02 pm by Gusta
Comment (1)  

Saturday, April 05, 2008
Sumarið er tíminn

Shiiitt hvað það er langt síðan ég bloggaði síðast! Surprise Svona það helsta sem ég hef gert síðan þá..............

Er búin að fara til Reykjavíkur á 10 ára grunnskóla reunion

Það var ekkert smá gaman að hitta alla aftur..en samt náttúrulega lang skemmtilegast að hitta uppáhalds vini mína, sem ég hef ekki hitt allt of lengi. Svona er þetta þegar maður býr 700km frá öllum! Shocked 

Fór til Akureyrar um páskana og var þar í góðu yfirlæti hjá familíunni minni. Renndum okkur á bretti, borðuðum góðan mat og drukkum bjór Big Smile Klassi!

Skellti mér til London með mömmu, Begga og Hafdísi síðustu helgi. Æltaði ekkert að versla, en endaði með að kaupa allt of mikið Tongue Fórum í leikhús, á We will rock you, og vááááá hvað það var gaman. Mæli sko með því að skella sér á þessa sýningu ef þú ert á leiðinni til London. Skoðuðum svo borgina úr London eye, sem var alveg frábært. En úfff hvað þetta er samt hátt!

Í gærkvöldi fórum við svo á tónleika á Eskifirði. Þetta er einhver tónleikaferð Rásar 2  -Rokka hringinn- held ég að hún heiti. Benny Crespo's Gang, Sign og Dr. Spock sáu um rokkið ásamt Eskfirskri hljómsveit sem ég man ekki hvað heitir. Þetta var bara helvíti gaman, kom mér skemmtilega á óvart. Æjj ég er líka orðinn svo svakalegur rokkari heheh..

Á morgun er svo fyrsti leikurinn okkar í Lengjubikarnum.Tindastóll verður fyrir barðinu og verður leikurinn í Boganum á Akureyri. Roadtrip!! Shades

En nú er kominn apríl og það þýðir að vorið sé alveg að koma, sem þýðir að sumarið sé alveg að koma, sem þýðir að það er engin afsökun lengur að taka ekki roadtrip austur til mín, sem þýðir gleði, gleði, gleði! Big Smile

Hlakka til að sjá ykkur, Borgarrotturnar mínar.

Knús og kossar


Posted at 03:10 pm by Gusta
Comment  

Sunday, March 09, 2008
5 dagar

Nú fer að styttast í Reykjavíkurför mína og ég er að deyja úr spenningi. Líður eins og ég sé að fara á stað sem ég hef aldrei komið á áður..framandi slóðir á suðvestur horninu.

 

Helgin sem er að líða er búin að vera góð. Ég og Bylgja skelltum okkur til Máneyjar í 'Bandið hans Bubba partý' á föstudaginn. Það var helvíti fínt..sötrað öl, borðað snakk, horft á Bandið og spjallað saman Big Smile Svo var það laugardagurinn, vægast sagt mjög skrítin úrslit í ensku bikarkeppninni. United tapaði á móti Portsmouth og Chelsea fetaði í fótspor Liverpool og tapaði fyrir Barnsley. Veit það með vissu að Liverpool aðdáendum er létt. Þeir voru farnir að efast um getu sinna manna, en sáu nú að Barnsley er hreinlega bara svona gott lið! Held alla vega klárlega með þeim í þessari keppni fyrst Man U er dottið út. Væri reyndar gaman fyrir Hemma að lyfta bikarnum þannig að ég vona að það verði Portsmouth - Barnsley í úrslitunum. Smile Okkur skötuhjúum var síðan boðið í mat til Ágústu og Bigga um kvöldið. Þar fengum við dýrinds svínakjöt og sátum yfir svakalegu bíókvöldi RÚV fram yfir miðnætti. Hefði aldrei trúað því að ég myndi upplifa það að sitja með þremur karlmönnum og horfa á bresku útgáfuna af Öskubusku, bandarísku unglingamyndina She's the man og draugamyndina Ghostship. Hefðum getað toppað þetta kvöld með Amerísku bökunni númer 2 en ákváðum að láta þetta gott heita og brunuðum heim.

Fínasta helgi að baki þrátt fyrir mikla þreytu eftir æfingar helgarinnar. Var svo búin á því eftir æfinguna í dag að ég meikaði ekki að fara á Eskifjörð í afmæli Hurmph Var reyndar líka eitthvað slöpp þannig að ég lá bara upp í sófa, algjörlega búin á því!

Annars held ég að þetta sé bara orðið gott í dag. Bristol R. að drulla upp á bak á móti W.B.A og næsta fótboltaleikur að fara að byrja. Ahhh elska helgar Big Smile

 


Posted at 08:22 pm by Gusta
Comments (4)  

Thursday, March 06, 2008
Heil meðganga, takk fyrir

Já það er bara kominn mars! Vá hvað tíminn líður hratt...ég er búin að búa hér fyrir austan í næstum því ár, nánar til tekið í nákvæmlega 9 mánuði Big Smile Þetta er sko búinn að vera yndislegur tími, þó svo að ég sakni bæði vina og ættingja alveg ógurlega mikið! Líkar mjög vel í vinnunni, fótboltinn snilld og svo er fjölskyldan hans Einsa náttúrulega alveg frábær Smile 

Jæja nóg af þessu væli....ég skellti mér norður á Akureyri síðustu helgi með Boggu og Bylgju (þær vinna með mér), smá menningarferð. "Brunuðum" norður eftir vinnu á föstudaginn og sýndi ég stelpunum hvernig öryggir ökumenn keyra. Þegar ég fór og sótti lyklana að húsinu spurði Gústi frændi mig hvort ég hefði bakkað alla leiðina, veit ekki alveg hvað hann er að tala um!!! Shocked hehehe... Við komumst alla vega alla leið. Ákváðum að láta nú ekki föstudagskvöldið fara til spillis og skelltum okkur út á lífið. Kvöldið var algjör snilld, þrátt fyrir smá vesen í lokin. Okkur tókst að missa lyklana í leigubilnum á leiðinni í bæinn og vorum því læstar úti kl.5 um morguninn í þvílíkri snjókomu og kulda. Þar sem leigubílakonan var farin heim að sofa og þetta var algjör NEYРgátum við bara ekkert gert nema að hringja í 112. Lögreglan á Akureyri kom eftir smá stund og skrúfaði upp gluggan fyrir okkur og sluppum við því við að sofa úti í þetta skiptið! Shades Laugardagskvöldið var aðeins rólegra, alla veganna hjá okkur Boggu...Bylgja stóð fyrir sínu! Big Smile 

Svo fer að koma að Reykjavíkurferð og Londonferð! Vúhú!!!!!!! Nóg að gera í marsmánuði.

 

Úps komin brunalykt í húsið, kjúllinn að brenna..........


Posted at 07:17 pm by Gusta
Comment  

Tuesday, February 26, 2008
Spurning um að fara í megrun

Ég elska þessa krakka á leikskólanum hjá mér. Þetta samtal átti sér stað í dag:

3 ára strákur: "Hvað heitir mamma þín?"

Ég: "Stella"

3 ára strákur: "Hvað heitir strákurinn þinn?"

Ég: "Ég á engan strák og ekki heldur stelpu (og set upp svona smá fýlusvip)"

3 ára strákur: "Ó (mjög leiður á svip). Ég skal bara vera strákurinn þinn."

Ég: "Nei það er ekki hægt. Mamma þín og pabbi eiga þig"

3 ára strákur: "En ef ég fer bara í magann á þér og þú fæðir mig, þá átt þú mig líka"

Ég: "hehe..já en þú ert nú aðeins of stór til þess að komast inn í magann á mér"

3 ára strákur brosir sínu blíðasta: "Nei nei þú ert með svo stóran maga" Smile 

Ohhh þessar elskur! Big Smile 


Posted at 09:54 pm by Gusta
Comment (1)  

Sunday, February 24, 2008
Kúkabrandarar detta seint úr tísku

Ég bara varð að stela þessu. Sá þetta á einhverri síðu sem ég rakst óvart inn á á daglega bloggrúntinum og ég pissaði næstum á mig úr hlátri Big Smile 

Draugadrjóli: Þú finnur hann koma út en það er enginn kúkur í klóinu þegar þú kíkir.

Hreinn skítur: Sá sem þú skítur og sérð í skálinni en það er ekkert á skeinipappírnum.

Eltikúkur: Þegar þú ert búin að kúka og búin að girða hálfa leið upp um þig og fattar að þú þarft að kúka meira.

Sprengja-æð-í-enninu hnulli: Sá sem þú þarft að hafa svo mikið fyrir að koma frá þér að þú færð næstum slag.

Dauðadrumbur: Svo ógeðslega stór að þú þorir ekki að sturta án þess að búta hann í sundur með blýanti.

Loftpressukúkur: Kemur með svo miklum látum að allir í kallfæri flissa.

Þynnkuskita: Kemur eftir fyllerí. Helsta einkenni hans eru bremsuförin í skálinni.

Maískúkur: Skýrir sig sjálfur.

Ohh-ég-vildi-að-ég-gæti-kúkað kúkur: Þú þarft að kúka en situr bara á dollunni og fretar.

Mænustunguskítur: Þessi er svo brjálæðislega sársaukafullur að þú ert viss um að hann er á leiðinni út þversum.

Rasskinnableytuþrumari (Orkuþrumari): Fer út á svo miklum hraða að afturendinn á þér rennbleytist af klósettvatni.

Fljótandi drulla: Gulbrúnn vökvi frussast út um alla skál og jafnvel útá rasskinnar í leiðinni . Hér kæmi þvottapoki sér betur en skeinipappír.

Háklassakúkur: Kúkur sem lyktar ekki.

Óvæntur kúkur: Þú ert ekki einu sinni á klóinu því þú hélst að þú þyrftir bara að prumpa en... úps, sparð. (þessa gerð vil ég kalla "frúk (þú ætlar að FReta en það kemur óvart kÚKur)

Slórskítur: Kúkurinn losnar ekki frá rassgatinu á þér þó þú sért búin að kúka fyrr en þú hristir þig vel.

Atómsprengja: Þig svíður undan þessum á leiðinni út og svíður enn í marga klukkutíma á eftir.

Skopparakúkur: Hörð spörð sem fara eins og skopparaboltar um alla skálina (kosturinn er að þarf lítið að skeina)

Mikilmennskukúkur: þú rembist og rembist og svo kemur eitt pínulítið lambasparð.

Íþróttaálfurinn: kemur ca. klukkutíma eftir leikfimina.

Klippikúkur: sem er svo langur að þú þarft að kúka - klippa - kúka - klippa...

Þeim sem ekki finnst þetta fyndið þurfa virkilega að endurskoða húmorinn sinn....hehehehe


Posted at 10:06 pm by Gusta
Comments (2)  

Next Page